Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. febrúar 2010 15:05
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Carrick: Rio verður frábær fyrirliði
Michael Carrick leikmaður Manchester United telur að liðsfélagi sinn Rio Ferdinand muni standa sig mjög vel sem fyrirliði enska landsliðsins.

Ferdinand tók við fyrirliðabandinu af John Terry eftir að framhjáhald hins síðarnefnda með þáverandi unnustu Wayne Bridge komst upp. Ákvað landsliðsþjálfarinn Fabio Capello eftir nokkrar vangaveltur að svipta Terry bandinu og valdi hann Ferdinand sem arftaka hans.

Þessi fyrirliði Manchester United var varafyrirliði í fyrirliðatíð Terry og mun hann bera fyrirliðabandið á komandi heimsmeistaramóti í Suður Afríku í sumar. Er Carrick viss um að hann muni standa sig með prýði.

„Rio er frábær náungi og frábær fyrirliði. Hann er heimsklassaleikmaður,“ sagði Carrick við The Sun.

„Hann hefur verið fyrirliði í úrslitum Meistaradeildarinnar og unnið þann leik, svo að hann mun höndla pressuna.“

„Leikmennirnir bera virðingu fyrir Rio og það er mikilvægt. Ég er viss um að hann mun standa sig vel.“

„Þegar á völlinn er komið þurfa allir að hafa ákveðna stjórn á leiknum svo að ég tel ekki að þetta muni hafa of mikil áhrif.“
Slapp
banner