Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 08. febrúar 2010 19:51
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
Seve Ballesteros segir Racing að skora fimm mörk
Seve Ballesteros, einn frægast golfleikari allra tíma, hefur beðið leikmenn Racing Santander að skora fimm mörk gegn Atletico Madrid í síðari leik liðanna í undanúrslitum spænska bikarnum á fimmtudag.

Atletico Madrid sigraði 4-0 í fyrri leiknum í síðustu viku en Ballesteros hefur trú á sínum mönnum í Racing.

,,Strákar! Fimm mörk er það sem við þurfum," sagði Ballesteros á heimasíðu sinni.

,,Ómögulegt er orð sem að ég hef aldrei kunnað vel við. Við höfum 90 mínútur til að afreka eitthvað sem er erfitt en ég tek fram að það er ekki ómögulegt. Áfram Racing! Gangi ykkur vel Racing."

Ballesteros er að jafna sig eftir heilaæxli en hann ætlar að reyna að mæta á leikinn á fimmtudaginn.
Slapp
banner
banner
banner