Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. febrúar 2010 18:34
Magnús Már Einarsson
Heimild: Svenska fans 
Hjálmar skoraði og Theodór Elmar maður leiksins hjá Gautaborg
Hjálmar skoraði beint úr aukaspyrnu.
Hjálmar skoraði beint úr aukaspyrnu.
Mynd: Guðmundur Svansson
Hjálmar Jónsson skoraði þriðja mark IFK Gautaborg þegar að liðið sigraði danska liðið Álaborg 3-1 í æfingaleik um helgina.

Hjálmar skoraði með fallegu skoti beint úr aukaspyrnu en markið kom undir lok leiksins.

Theodór Elmar Bjarnason var valinn maður leiksins hjá Gautaborg en hann fær sex í einkunn af sjö mögulegum á heimasíðunni Svenskafans.

Hjálmar fékk 5,5 í einkunn sem og Ragnar Sigurðsson en þeir léku saman í miðri vörn Gautaborg.
Slapp
banner
banner