Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 08. febrúar 2010 19:16
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Ferguson á langt í land með að ákveða landsliðsframtíð sína
Barry Ferguson leikmaður Birmingham segist ætla að hugsa sig vel og vandlega um áður en hann tekur ákvörðun varðandi framtíð sína með skoska landsliðinu.

Ferguson hefur ekki leikið með landsliðinu síðan honum var hent út úr liðinu af fyrrverandi landsliðsþjálfara, George Burley, vegna skandals sem hann lenti í í Hollandi í apríl síðastliðnum.

Craig Levein, sem nú stýrir landsliðinu, hefur þó boðið Ferguson að snúa aftur í liðið og er leikmaðurinn að íhuga það. Vill hann ekki eyðileggja feril sinn með félagsliðinu.

,,Ég þarf enn að hugsa mig vandlega um og ég er ekki nálægt því að taka ákvörðun," sagði Ferguson við Daily Record.

,,Ég er algerlega skuldbundinn Birmingham City. Ég vil gefa þeim heilt tímabil því að þeir ákváðu að fá mig þegar allir hinir voru að brjóta mig niður."

,,Það er margt sem ég þarf að íhuga í sambandi við landsliðið og það mun taka mig langan tíma að taka ákvörðun."

,,Þegar Craig var ráðinn sagði ég að hann væri rétti maðurinn í starfið og hann er örugglega sá eini sem ég myndi spila undir hjá landsliðinu úr þessu."
Slapp
banner
banner