Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. febrúar 2010 15:08
Magnús Már Einarsson
Kristinn Jakobsson dæmir hjá Shakhtar Donetsk og Kalmar
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Kristinn Jakobsson mun dæma leik Shakhtar Donetsk og FF Kalmar í kvöld.

Leikurinn er hluti af Copa del Sol æfingamótinu sem nú fer fram á Spáni. Shakhtar og Kalmar eru með Molde og FC Köbenhavn í A-riðli mótsins.

Áskell Gíslason og Frosti Gunnarsson verða aðstoðardómarar og Þóroddur Hjaltalín verður fjórði dómari í leiknum.

Hægt verður að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu á skandinavískum sjónvarpsstöðvum.
Slapp
banner