Heimild: BBC
West Bromwich Albion hefur fengið framherjann Frank Nouble á láni frá West Ham.
Þessi 18 ára gamli leikmaður fær leikheimild á morgun og getur því leikið með WBA gegn Scunthorpe annað kvöld.
Nouble, sem kom til West Ham frá Chelsea í fyrra, hefur dottið niður goggunarröðina hjá Hömrunum eftir að Benni McCarthy og Ilan komu til félagsins á dögunum.
WBA er sem stendur í öðru sæti í Championship deildinni en liðið verður án Ishmael Miller og Jerome Thomas í næstu leikjum og því kemur Nouble til að fylla skarðið sem þeir skilja eftir sig.


