Heimild: BBC
Jordan Henderson, miðjumaður Sunderland, verður væntanlega frá keppni næstu fjórar til sex vikurnar vegna ökklameiðsla.
Þessi 19 ára gamli leikmaður meiddist á ökkla í 1-1 jafnteflinu gegn Wigan um helgina en hann hafði lagt upp mark fyrir Kenwyne Jones skömmu áður en hann varð fyrir meiðslunum.
Henderson hefur fest sig í sessi í liði Sunderland á þessari leiktíð og skorað tvö mörk í 28 leikjum en Steve Bruce stjóri liðsins segir að alvarleiki meiðslana komi betur í ljós síðar í vikunni.
,,Jordan mun fara í rannsóknir á fimmtudag. Við ætlum að láta bólguna minnka. Það er tilgangslaust að skoða hann núna því að bólgan er svo stór," sagði Steve Bruce stjóri Sunderland.


