Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 09. febrúar 2010 07:13
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Markaþurrð hjá John Motson - Ekki fengið að lýsa marki á árinu
John Motson er einhver frægasti fótboltalýsandi Englendinga en hann hefur lýst leikjum í meira en 40 ár.

Árið 2010 byrjar hins vegar ekki vel hjá Motson sem lýsir leikjum fyrir Match of the Day þáttinn á BBC.

Motson hefur lýst fjórum leikjum á þessari leiktíð en þeir hafa allir endað með markalausu jafntefli.

Um helgina lýsti Motson leik Tottenham og Aston Villa en hann hafði áður lýst leik West Ham og Blackburn, Aston Villa og Arsenal og Tottenham og Hull.

Motson lýsir leik Wolves og Tottenham á morgun og hann vonast eftir marki þar.

,,Þetta er lengsta markaþurrð sem ég hef lent í. Ég vonast eftir marki í leik Wolves og Spurs á Molineux," sagði hinn 64 ára gamli Motson.
Slapp
banner
banner
banner