Menn keppast um það þessa dagana að láta ummæli falla um Rio Ferdinand leikmann Manchester United og nýjan fyrirliða enska landsliðsins.
Ferdinand tekur við bandinu af John Terry leikmanni Chelsea sem misteig sig í einakílífinu og Fabio Capello þjálfari Englands ákvað að taka af honum bandið.
,,Rio verður góður fyrirliði, að sjálfsögðu verður hann það," sagði Keane sem var fyrirliði Manchester United á árum áður.
,,Hann er í heimsklassa og hefur verið í langan tíma, hann kemur með öðruvísi hæfileika í þessa stöðu," sagði Keane og Gary Neville tekur í saman streng.
,,Það er heiður að vera fyrirliði hjá landinu þínu. Rio hefur gert vel fyrir England í langa tíma. Hann var varafyrirliði og þetta var því augljóst val. Það er frábært fyrir félagið að eiga fyrirliða Englands."



