Heimild: Heimasíða Lilleström
Stefán Logi Magnússon, markvörður Lilleström, segir norska liðsfélaga sína ekki hafa minnst einu orði á dráttinn í undankeppni EM sem fram fór í gær en Ísland og Noregur röðuðust saman í riðil, ásamt Portúgal, Danmörku og Kýpur.
,,Það hefur enginn minnst einu orði á þetta ennþá og ég held að þeir þori því einfaldlega ekki. Íslandi náði nefnilega tveimur góðum úrslitum gegn þeim í síðustu undankeppni,” sagði Stefán á heimasíðu Lilleström í dag og bætti við að hann sjálfur hafi aldrei tapað fyrir Noregi í keppnisleik.
Hann vill að Norðurlandaþjóðirnar þrjár í riðlinum fylki sér saman um að gera Portúgölum lífið leitt.
,,Við verðum að reyna að hjálpa hver öðrum. Portúgal er sigurstranglegast og þess vegna verðum við að virkja okkar norrænu bræðrabönd. Við verðum að knésetja Portúgal.”
Stefán hefur verið út í kuldanum hjá Ólafi Jóhannessyni, landsliðsþjálfara, í síðustu leikjum en hann segist vera reiðubúinn að svara kallinu verði leitað á hans náðir í komandi verkefnum.




