Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 09. febrúar 2010 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Walcott segir Arsenal þurfa að finna drápseðli
Theo Walcott leikmaður Arsenal segir að hann og liðsfélagar sínir verði að finna drápseðli sitt ætli liðið sér að vera með í barátunni um sigur í ensku úrvalsdeildinni.

Liðið er nú níu stigum á eftir Chelsea eftir tapið um helgina og sjö á eftir Manchester United.

,,Við vorum betri gegn Chelsea en þeir nýttu færin sín og þú verður að gera það," sagði Walcott.

,,Við verðum að læra af þessu og halda áfram því leikurinn gegn Liverpool er mikilvægur. Ef við höldum boltanum eins og gegn Chelsea og sköpum fleiri færi þá getum við drepið hvern sem er."

,,Það muna allir eftir úrslitunum og við verðum að vinna svona leiki."

Slapp
banner
banner