Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 09. febrúar 2010 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Bruce segist læra á slæmu gengi Sunderland
Steve Bruce stjóri Sunderland telur að slæmt gengi liðsins muni hjálpa honum í framtíðinni.

Lærisveinar Bruce hafa ekki unnið í 11 leikjum í röð en liðið byrjaði tímabilið afar vel en hefur ekki náð að fylgja því eftir.

,,Þegar þú kemst í gegnum þetta þá lærirðu af þessu," sagði Bruce.

,,Það líkar þetta engum, ég væri að ljúga af ég sagði að mér fyndist þetta gaman en þú lærir af þessu og þetta fer í reynslubankann."

,,Ég hef lagt mig allan fram alla mína ævi og ég mun gera slíkt hið sama til að snúa þessu við."

,,Það er ekki hægt að fela sig á bakvið þetta, við verðum að ná úrslitum það er bara þannig."

Slapp
banner
banner