Heimild: Sky
Edwin van der Sar markvörður Manchester United er glaður með að vera byrjaður að spila að nýju.
Þessi hollenski markvörður hefur einungis leikið níu leiki á þessu tímabili.
Meiðsli komu í veg fyrir að hann spilaði í byrjun tímabilsins og svo veiktist kona hans og hann fékk frí.
Hann kom ti baka um miðjan janúar og síðan þá hefur United komist á gott skrið.
,,Það er gott að vera byrjaður að spila aftur," sagði þessi 39 ára gamli markvörður.
,,Þetta hefur verið tímabil þar sem ég hef byrjað en þurft að hætta aftur og þú missir út rútínuna."
,,Það er frábært að vera kominn aftur á ferðina og spila fyrir United aftur."


