Heimild: AFP
John Terry fyrirliði Chelsea þakkaði stuðningsmönnum Chelsea fyrir stuðninginn eftir leik liðsins gegn Arsenal á sunnudag.
Chelsea vann 2-0 sigur og var nafn Terry á allra vörum enda mikið verið í fréttum útaf einkalífi sínu.
,,Fyrir mig persónulega þá vil ég þakka hverjum einasta stuðningsmanni," sagði Terry.
,,Þetta var tilfinningaríkur dagur fyrir mig og hvernig stuðningsmennirnir hafa verið við mig síðustu tvær vikur hefur verið frábært."
,,Ég átti ekki von á þessu og vil ég því þakka hverjum einasta stuðningsmanni sem hefur stutt mig."
,,Þetta var frábært frammistaða, ég meina þetta frá hjartanu, ég vil þakka öllum."

