Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 09. febrúar 2010 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: AFP 
Ballack: Wenger leitar alltaf af afsökunum
Michael Ballack leikmaður Chelsea og þýska landsliðsins segir að Arsene Wenger stjóri Arsenal leiti alltaf af afsökunum eftir tapleiki liðsins.

Chelsea lagði Arsenal af velli 2-0 á Stamford Bridge á sunnudag.

,,Við vitum hvernig Arsenal spilar, þeir spila alltaf eins. Ef þú spilar eins og við gerðum þá geturðu unnið þá," sagði Ballack.

,,Á þessu tímabili og síðasta hafa þeir sýnt það að þeir geta ekki unnið deildina."

,,Hann (Wenger) leitar alltaf af afsökunum þegar hann tapar. Fótbolti snýst ekki um hvort liðið er meira með boltann og spilar vel. Fótbolti snýst um að vinna leiki og það sýndi Manchester United þegar þeir unnu þá og við gerðum það líka."

,,Það er hægt að vinna leiki á marga vegu en þetta snýst um fjölbreytni, spila fallegan fótbolta en einnig líkamlegan styrk. Við erum með góða blöndu í okkar liði eins og við höfum sýnt á þessari leiktíð. Við erum efstir og það telur."

Slapp
banner
banner