Heimild: Sky
Rafa Benitez stjóri Liverpool hrósar hollenska framherjanum, Dirk Kuyt fyrir 50 mörkin sem hann hefur gert fyrir félagið.
Kuyt náði þessum áfanga á laugardag er liðið lagði Everton 1-0 þrátt fyrir að vera manni færri í klukkustund.
,,Ég held að allir viti það núna hvað Kuyt getur gert fyrir okkur," sagði Benitez.
,,Hann hefur gæði og er frábært í hverjum einasta leik og leggur sig hart fram fyrir liðið."
,,Hann getur leyst hinar ýmsu stöður, við vissum að Leighton Baines hefur átt gott tímabil svo Kuyt lagði sig fram til að halda honum uppteknum."
,,Fram á völlinn hefur hann verið í vandræðum en hann er núna að skora fleiri mörk. Liðsfélagar hans vita að hann er góður og það sama má segja um stuðningsmennina."




