Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 09. febrúar 2010 09:00
Magnús Már Einarsson
Hin Hliðin - Skúli Jón Friðgeirsson (KR)
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Þá er komið að Hinni Hliðinni hér á Fótbolta.net. Skúli Jón Friðgeirsson, hægri bakvörður KR-inga, sýnir á sér hina hliðina í dag.

Skúli Jón hefur þrátt fyrir ungan aldur verið fastamaður í liði KR í nokkur ár. Hann leikur einnig með U21 árs landsliði Íslendinga.

Fullt nafn: Skúli Jón Friðgeirsson

Gælunafn: Gary, Harry Potter

Aldur: 21

Giftur / sambúð? Nei nei
Börn: Á það eftir

Hvað eldaðir þú síðast? Steikti mér hamborgara

Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Pepperoni, rjómaost og svartan pipar

Uppáhaldssjónvarpsefni? 24, Jack Bauer er maðurinn

Besta bíómyndin? Gæti horft á Gladiator á hverjum degi, gerði það reyndar á tímabili

Uppáhaldsútvarpsstöð: X-ið og Rás2

Hver er uppáhalds platan þín? History, Michael Jackson

Uppáhaldsdrykkur? Kók í gleri

Uppáhalds vefsíða? Baggalutur.is

Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Eiginlega ekki nei

Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Stíga ítrekað “óvart” ofan á tærnar á honum

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Vali

Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? David Beckham

Erfiðasti andstæðingur? Þessir Basel náungar sem við spiluðum við í sumar voru allt í lagi

Ekki erfiðasti andstæðingur? Óðalsbóndinn Gunnar Kristjánsson í reitarbolta

Besti samherjinn? 3. Flokks lið KR þegar ég var á eldra ári, unnum alla leiki og enduðum með einhverja fáránlega markatölu

Sætasti sigurinn? Bikarúrslitaleikurinn 2008, þegar ég komst að því hvað það er miklu skemmtilegra að vinna en að tapa bikarúrslitaleik

Mestu vonbrigði? Bikarúrslitaleikurinn 2006, ekki gaman

Hvað er þitt uppáhaldslið í enska boltanum? Man Utd

Uppáhaldsknattspyrnumaður? Ásgrímur Geir Logason

Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Eiður Smári, er of ungur til að vera dómbær á getu Ásgeirs Sigurvinssonar, en ef hann hefur verið eitthvað í líkingu við son sinn að þá er svarið Eiður

Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Albert Guðmundsson jr

Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Gunnar Örn Jónsson heldur að hann sé það allavega

Fallegasta knattspyrnukonan? Embla Grétarsdóttir

Grófasti leikmaður deildarinnar? Eftir að Guðmann Þórisson hélt til Noregs að þá eru bara ljúfmenni eftir í þessari deild

Besti íþróttafréttamaðurinn? G. Ben ber höfuð og herðar yfir alla aðra

Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Jón Kári Ívarsson, en hann svindlar samt enda brúnn allan ársins hring og þarf eitthvað lítið að hafa fyrir hlutunum

Hefurðu skorað sjálfsmark? Nei ekki svo ég muni eftir allavega

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Það gerðist í úrslitaleik Dana Cup í 4. flokki að Skúli Jónsson slapp einn í gegnum vörn andstæðinganna frá Ghana en í stað þess að skora og rífa sig úr treyjunni, átti nafni minn arfaslakt skot framhjá stönginni og reiddist svo við sjálfan sig að hann reif niður um sig buxurnar. Labbaði hann í dágóðan tíma með buxurnar á hælunum á meðan hann hélt áfram að rífast og skammast útí sjálfan sig. Sem betur fer var þessi leikur tekinn upp og því eru herlegheitin öll til á video sem við höfum reglulega horft á eftir þetta.

Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Ég hef verið 15-16 ára, 16 ára spilaði ég allavega minn fyrsta deildarleik.

Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Frábær

Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Alltof oft

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Það væri ágætt ef það mætti anda á markmenn inní vítateignum án þess að það sé dæmt á það.

Hvern vildir þú sjá á sviði? Michael Jackson eða Queen en það er víst ekki í boði lengur, þannig að í dag ætli það sé ekki Coldplay

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Hita upp

Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Friðrik Dór

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Ólafsfjörður

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Eitt 5 min snooze og þá er ég góður

Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Tiger Woods, þrátt fyrir þessi smávægilegu vandamál sem hann á við að stríða þessa dagana

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já alveg mjög mikið, helst körfunni samt

Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Það er orðið eitthvað mjög langt síðan, ætli það hafi ekki bara verið á Manu – Chelsea fyrir rétt rúmu ári.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Predador síðan ég var svona 9ára

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Ég átti í frekar miklu basli með frönskuna

Hvað langar þig að taka þér fyrir hendur þegar knattspyrnuferlinum lýkur? Þegar stórt er spurt að þá er lítið um svör

Vandræðalegasta augnablik? Ætli það sé ekki þegar ég fór að gráta í paintball í sumar með liðinu

Komdu með eina staðreynd um þig sem flestir vita ekki um: Á flesta leiki spilaða fyrir mfl KR af leikmannahópnum í dag, reynsla
Slapp
banner
banner
banner