Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. febrúar 2010 13:38
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
Zlatan Ibrahimovic: Mörkin munu koma
Zlatan ibrahimovic, leikmaður Barcelona, hefur engar áhyggjur af markaþurrð sinni á þessu ári og segir það alveg jafn mikilvægt að leggja upp mark og að skora mark.

Þessi tekníski framherji hefur ekki skorað mark á árinu 2010 eftir frábæra byrjun með Barcelona eftir að hann kom til liðsins frá Inter Milan í sumar.

,,Ég hef engar áhyggjur, þetta hefur gerst nokkrum sinnum áður," sagði Ibrahimovic.

,,Á fyrsta ári mínu hjá Ajax byrjaði ég vel síðan urðu hlutirnir slæmir, síðan góðir á ný, þetta er rússíbani."

,,Þetta er eðlilegt af því að maður þarf að aðlagast hlutum á mjög skömmum tíma. Það sama gerðist er ég kom til Juventus og Inter, tímabil með hæðum og lægðum."

,,Ef þú tekur þátt í spilinu og leggur upp fyrir félagana þá líður manni alveg jafn vel."

,,Stoðsending er alveg eins og mark, af því þú gleður samherja þinn. Það er alveg jafn mikilvægt fyrir mig og að skora."

,,Ég hef engar áhyggjur af þessu slæma ferli af því að mörkin munu koma. Ef þú spilar vel og hjálpar liðinu þá færðu færi og þú munt skora."
Slapp
banner
banner
banner