Heimild: Sky
Paul Dickov hinn margreyndi framherji æfir með Leeds þessa dagana en hann er án félags.
Þessi 37 ára gamli leikmaður hefur ýmsa fjöruna sopið en hann rifti samningi sínum við Leicester í síðustu viku og getur því gengið í raðir Leeds frítt ef svo ber undir.
,,Paul kom á mánudaginn og mun æfa með okkur í nokkra daga," sagði Simon Grayson stjóri Leeds sem stjórnaði Dickov þegar hann var í láni hjá Blackpool.
,,Ég hef þekkt Paul í langan tíma og hann var hjá mér hjá Blackpool, við munum sjá hvað gerist."
Dickov sem er frá Skotlandi skoraði 6 mörk í 11 leikjum fyrir Blackpool.




