Heimild: BBC
Þá er komið að helsta slúðrinu úr enskum fjölmiðlum en pakkinn er í boði Powerade.
Franck Ribery, leikmaður Bayern Munchen, segist vera spenntur fyrir því að fara til Barcelona og leika með landa sínum Thierry Henry. (The Guardian)
Marouane Chamakh, framherji Bordeaux, er nálægt því að ganga til liðs við Arsenal eftir að hann náði ekki samningum við Liverpool. (The Times)
Mukesh Ambani, sjöundi ríkasti maður í heimi, hefur áhuga á að kaupa Liverpool. (The Times)
Ambani, sem er frá Indlandi, hefur neitað fregnum um að hann hafi áhuga á Liverpool. (AFP)
Arsenal hefur skrifað bréf til Barcelona og beðið spænsku risana um að hætta að reyna að fá Cesc Fabregas. (Daily Mirror)
Ricardo Fuller, framherji Stoke, mun halda sæti sínu í leikmannahópi liðsins gegn Wigan í kvöld þrátt fyrir að hafa verði handtekinn um helgina. (The Times)
David Sullivan, eigandi West Ham, segir að þeir stuðningsmenn Birmingham sem ætli að baula á sig þegar að liðin mætast á morgun séu aular en hann telur að besti tími í sögu Birmingham hafi verið þegar að hann var þar við stjórnvölinn. (Daily Mirror)
David Gold, sem á West Ham ásamt Sullivan, segir að Hamrarnir séu stærra félag en Birmingham. (The Times)
Mark Hughes, sem var rekinn frá Manchester City á dögunum, er að íhuga að taka við tyrkneska landsliðinu. (Daily Mail)
Hughes gæti tekið við West Ham af Gianfranco Zola ef vandræði félagsins halda áfram. (The Times)
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, er undir pressu en krafa er á að hann nái Meistaradeildarsæti. (Daily Mail)
Gianfranco Zola, stjóri West Ham, og leikmenn liðsins munu fá beiðni um að taka á sig 25% launalækkun í lok tímabilsins. (The Sun)
Ian Holloway, stjóri Blackpool, hefur tekið þrjá leikmenn út úr hópnum fyrir leikinn gegn Sheffield Wednesday í kvöld þar sem að leikmennirnir skelltu sér út á lífið eftir tap gegn Leicester á laugardaginn. (Daily Mirror)
Dean Windass, fyrrum framherji Bradford, gæti tekið sem knattspyrnustjóri félagsins eftir að Stuart McCall var rekinn. (Daily Mirror)
Fjgöurra ára samningur Kieron Dyer hjá West Ham gæti kostað félagið 30 milljónir punda. Miðjumaðurinn hefur verið mikið meiddur og hefur einungis verið fimm sinnum í byrjunarliði í úrvalsdeildinni á tveimur og hálfu ári. (Daily Mail)

