Heimild: Heimasíða Hödd
Magnús Már Lúðvíksson, leikmaður Þróttar, er á leið til Hödd í Noregi en liðið leikur í þriðju efstu deild.
Magnús Már mun halda til Noregs á morgun og skrifa undir samning hjá félaginu en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í dag.
Á dögunum var Magnús Már til reynslu hjá Hödd ásamt Guðmundi Péturssyni en samkvæmt heimasíðu félagsins er allt klárt fyrir undirskrift samninga og búið er að útvega Magnúsi bæði íbúð og vinnu.
,,Maggi er sterkur og fljótur leikmaður sem hefur spilað í efstu deild á Íslandi með KR Reykjavík, hann getur spilað fleiri en eina stöðu," sagði André Nevstad yfirmaður íþróttamála hjá Hödd.
Magnús Már skrifaði í haust undir tveggja ára samning við Þrótt en hann er með klásúlu í samningnum þess efnis að hann megi fara frítt til Hödd.
Síðastliðinn vetur gekk Magnús Már til liðs við uppeldisfélag sitt KR en hann fór síðan aftur til Þróttar á láni um vorið og lék með liðinu í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.
Magnús hefur leikið með Þrótti frá því árið 2005 og skorað þrettán mörk í 85 deildar og bikarleikjum með Þrótti.
Þessi 28 ára gamli kant og sóknarmaður hefur einnig leikið með ÍBV, Val og Fjölni hér á landi.


