Ríkasti maður Indlands segist ekki ætla að kaupa Liverpool
Mukesh Ambani, ríkasti maður Indlands, segir ekkert til í sögusögnum þess efnis að hann hafi áhuga á að kaupa Liverpool.
Ambani er sjöundi ríkasti maður heims en orðrómur hefur verið um að hann og Subrata Roy, formaður Sahara fjárfestingafélagsins, hafi viljað borga upp skuldir Liverpool í skiptum fyrir 51% hlut í félaginu.
Liverpool skuldar 237 milljónir punda en félagið er sem stendur í eigu Tom Hicks og George Gillet Jr.
,,Þessar fréttir eru ekki sannar. Við neitum þeim algjörlega," sagði Sudeep Purkayastha talskona Ambani.