Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 09. febrúar 2010 11:05
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Wenger svarar Ballack: Ég hrósaði Chelsea
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur svarað gagnrýni frá Michael Ballack miðjumanni Chelsea.

Wenger sagði eftir 2-0 tap gegn Chelsea um helgina að sínir menn hefðu verið betri aðilinn í leiknum.

Ballack lét Wenger heyra það í gær og sagði að Frakkinn segi alltaf svona hluti þegar að hann tapar til að finna afsakanir.

Wenger hefur núna svarað Ballack og segir að fjölmiðlar hafi mistúlkað ummæli sem hann lét hafa eftir sér á fréttamannafundi eftir leikinn.

,,Ég hrósaði Chelsea eftir leikinn. Mér finnst ósanngjarnt af fjölmiðlum að taka eitt orð sem ég sagði á fréttamannafundinum og snúa út úr því," sagði Wenger.

,,Þið gerðuð það gegn Villa og gegn Chelsea. Ef þú horfir á fréttamannafundinn þá var ég jákvæður í garð andstæðingsins."
Slapp
banner
banner