Heimild:  
þri 09.feb 2010 11:14 Magnús Már Einarsson,
Gascoigne handtekinn aftur í gær
Mynd: NordicPhotos
Paul Gascoigne heldur áfram að koma sér í vandræði en í gær var hann handtekinn í annað sinn á tveimur dögum.

Gascoigne, sem er 42 ára, var handtekinn ásamt öðrum manni á hóteli í Darlington í gær.

Gasocigne var sakaður um að vera með óspektir á almannafæri en honum var sleppt úr haldi lögreglu án ákæru eftir yfirheyrslur.

Í fyrrakvöld var þessi fyrrum knattspyrnumaður handtekinn í bænum Leeming Bar en hann var sakaður um ölvunarakstur.

Gasocigne hefur verið duglegur að koma sér í fréttirnar eftir að fótboltaferlinum lauk en fréttirnar af honum eru þó oftast neikvæðar.

Í desember síðastliðnum fékk hann refsingu fyrir að láta ófriðlega og vera með drykkjulæti í Newcastle.
Nýjustu fréttirnar