Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. febrúar 2010 12:02
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Robinho ósáttur með taktíkina hjá Mancini
Robinho hefur lýst því yfir að hann hafi verið pirraður yfir því hvernig taktík Roberto Mancini, stjóri Manchester City, spilar hjá félaginu.

Robinho fór til Santos á láni á dögunum og skoraði í sínum fyrsta leik um helgina.

Á síðustu leiktíð skoraði Robinho 15 mörk með Manchester City en á þessari leiktíð fékk hann fá tækifæri hjá Mark Hughes og síðan Mancini.

,,Hann (Mancini) er með öðruvísi hugsunarhátt. Í Brasilíu þá virða þjálfararnir karakter hvers leikmanns," sagði Robinho.

,,Í Evrópu þá eru þeir vanir að spila með tvær línur með fjórum leikmönnum og þeir vilja ekki vita hvað þú getur gert."

,,Ef þú ert framherji þarna þá sendir þjálfarinn þig út á völl bara til að hlaupa. Þú verður að hlaupa og það er það eina sem þú átt að gera."

Slapp
banner
banner
banner