Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. febrúar 2010 11:59
Þórður Már Sigfússon
Heimild: Smalandsposten 
Öster ekki tilbúið að kaupa Kjartan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Henry Finnbogason sem hefur verið til reynslu hjá sænska B-deildarliðinu Öster undanfarna daga og skoraði m.a. í æfingaleik með liðinu um helgina, snýr aftur til Sandefjörd í dag.

Alls óvíst er hvort Öster geri Sandefjord tilboð í Kjartan en forráðamenn félagsins ætla að gefa sér smá tíma til að gera upp hug sinn.

,,Kjartan er ekki ókeypis,” sagði Andreas Ottoson, þjálfari Öster, í samtali við Smalandsposten.

,,Kannski munum við reyna að fá hann hingað aftur til að taka þátt í öðrum leik. Allavega þurfum við að fara vel yfir málið áður en við segjum tökum ákvörðun um að segja já eða nei við leikmanninn.”

Þess má geta að annar leikmaður var til reynslu hjá Öster á sama tíma og Kjartan og hafa forráðmenn Öster ákveðið að bjóða honum samning. Sá er frá Suður-Afríku og er ekki samningsbundinn öðru félagi.

Slapp
banner
banner