Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. febrúar 2010 12:15
Þórður Már Sigfússon
Heimild: Nordlys 
Atli stendur sig vel hjá Tromsö
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Atli Guðnason, leikmaður Íslandsmeistara FH, hefur staðið sig vel á æfingum hjá norska úrvalsdeildarliðinu Tromsö en hann hefur verið þar til reynslu frá því á sunnudag.

FH og Tromsö hafa þegar komist að samkomulagi um kaupverð á Atla og mun framhaldið því ráðast af frammistöðu leikmannsins á æfingum í þessari viku.

Fjórir leikmenn til viðbótar eru til reynslu hjá Tromsö, þar af tveir sem spila í sömu stöðu og Atli, og því er ljóst að FH-ingurinn þarf að sýna allar sínar bestu hliðar.

,,Allir fimm leikmennirnir hafa sýnt að þeir eru góðir knattspyrnumenn en þeir munu fá tíma til að sýna hvað í þá er spunnið,” sagði Per Mathias Høgmo, þjálfari Tromsö, í samtali við staðarblaðið Nordlys og tók fram að engar ákvarðanir yrðu teknar í fljótfærni við kaup á leikmönnum.

Slapp
banner