Heimild: Sky
Rio Ferdinand varnarmaður Manchester United hefur dregið til baka áfrýjun sína gegn auka banni fyrir brotið á Craig Fagan leikmanni Hull.
Ferdinand var ákærður fyrir ofbeldisbrot í síðasta mánuði eftir að sjónvarpstökuvélar náðu því á mynd er hann sló til Fagan í leik Man Utd og Hull á Old Trafford.
Ferdinand neitaði ákærunni og fékk eins leiks bann til viðbótar við sjálfkrafa þriggja leikja bann fyrir tilefnislausa áfrýjun.
Ferdinand ákvað að áfrýja aftur en hefur nú hætt við þá áfrýjun enda hefði hann getað bætt fimmta leiknum við með henni.
Ferdinand missir af komandi leikjum liðsins gegn Aston Villa, Everton og West Ham. Hann verður svo kominn til baka í leikinn gegn Aston Villa í úrslitum deildabikarsins en hann hafði áður tekið út bann um síðustu helgi gegn Portsmouth.



