Heimild: BBC
David Sullivan, annar af eigendum West Ham, segir að allir leikmenn félagsins verði beðnir um að taka á sig launalækkun í lok tímabilsins og það sama á við um annað starfsfólk.
West Ham skuldar 110 milljónir punda og Sullivan ætlar að reyna að rétta skútuna við.
,,Við ætlum að biðja alla hjá félaginu um að taka á sig launalækkun," sagði Sullivan.
Sullivan vonar að Gianfranco Zola, knattspyrnustjóri West Ham, taki líka á sig launalækkun.
,,Gianfrando fær mikið borgað og ég held að allir stjórar í úrvalsdeildinni séu á of háum launum."
,,Hvert sem litið er á þá er þetta komið út í öfgar. Allir fá of mikil laun fyrir starfið sem þeir vinna."
,,Félagið er að borga fyrir 110 farsíma og lágt sett starfsfólk er með Blakberry síma og svipaðar týpur."
Einn Íslendingur er á mála hjá West Ham en það er varnarmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson. Hann er sem stendur á láni hjá Roeselare í Belgíu.


