Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. febrúar 2010 15:10
Magnús Már Einarsson
Heimild: AP 
Ronaldinho ekki valinn í landsliðshóp Brasilíu
Dunga, landsliðsþjálfari Brasilíu, valdi Ronaldinho ekki í 22 manna leikmannahóp fyrir æfingaleik gegn Írum þann 2. mars næstkomandi.

Ronaldinho hefur ekki leikið með brasilíska landsliðinu í um það bil eitt ár.

Hann hefur hins vegar leikið vel með AC Milan á tímabilinu og stuðningsmenn Brasilíu og fjölmiðlar hafa kallað eftir því að fá leikmanninn aftur í landsliðið.

Leikurinn gegn Írum er síðasti æfingaleikurinn sem Brasilíumenn hafa skipulagt fyrir HM í sumar.
Slapp
banner