Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. febrúar 2010 15:01
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Steven Gerrard: Reynum að ná þriðja sætinu
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að liðið vilji komast upp fyrir Arsenal og ná þriðja sætinu í ensku úrvalsdeildinni.

Liverpool er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Arsenal en þessi lið mætast á Emirates á morgun.

,,Ég er viss um að leikmenn Arsenal verða eins og særð dýr á miðvikudag," sagði Gerrard.

,,Þetta er mikilvægur leikur fyrir okkur og markmiðið er að ná góðum úrslitum svo við getum reynt að ná þriðja sætinu."

,,Við tökum bara hvern leik fyrir sig. Auðvitað er markmið okkar að enda í topp fjórum í lok tímabils en ef að Arsenal gefur okkur möguleika á að ná þeim þá munum grípa tækifærið og vonandi gerum við það á miðvikudag."

Slapp