Heimild: Sporting Life
Gonzalo Higuain, framherji Real Madrid, segist hafa áhuga á að vera hjá félaginu í mörg ár í viðbót.
Í sumar var framtíð Higuain í óvissu eftir að Kaka, Cristiano Ronaldo og Karim Benzema komu til Real Madrid.
Þessi 22 ára gamli Argentínumaður hefur hins vegar leikið frábærlega í vetur en hann er markahæstur hjá Real Madrid með tólf mörk í La Liga.
Talið er að Real Madrid ætli að bjóða honum nýjan samning til ársins 2016 og Higuain hefur áhuga á að vera áfram hjá félaginu næstu árin.
,,Það væri draumur að fá að vera hér í langan tíma," sagði Higuain.
,,Ég er mjög ánægður og ég hef áhuga á að vera hér í mörg ár en umboðsmaður minn, sem er faðir minn, mun semja um það og jafnvel þó að ég fylgist með viðræðum þá er ég bara að einbeita mér að leikjunum. Þú vinnur þér inn nýjan samning með því að spila og skora mörk á vellinum."


