Heimild:  
þri 09.feb 2010 20:05 Alexander Freyr Einarsson,
Fellaini ekki með gegn Chelsea annað kvöld
Mynd: NordicPhotos
David Moyes knattspyrnustjóri Everton hefur greint frá því að Marouane Fellaini verði ekki til í slaginn þegar liðið mætir Chelsea annað kvöld, en Belginn meiddist í 1-0 tapi Everton gegn erkifjendunum í Liverpool um helgina.

Ökkli Fellaini er mjög bólginn eftir grófa tæklingu frá Sotirios Kyrgiakis í leiknum, en sá síðarnefndi fékk að líta rauða spjaldið á meðan Fellaini var borinn út á börum.

Moyes segir að meiðslin líti ekkert allt of vel út og er möguleiki á að hinn 22 ára Fellaini verði frá í nokkrar vikur.

„Fellaini átti að hitta sérfræðing í London en ferð lestarinnar sem hann átti að fara með var aflýst svo að hann missti af þeim tíma. Hann á tíma á fimmtudaginn," sagði Moyes.

„En ökklinn á honum lítur mjög illa út. Þetta kom mér mjög mikið á óvart, þetta var eins og fílsökkli. Já, svo slæmt var þetta."

„Meiðsli stráksins líta illa út en áður en sérfræðingurinn lítur á þetta getum við ekki tekið neinar ákvarðanir. En hans verður saknað."
Nýjustu fréttirnar