þri 09.feb 2010 21:45 Davíð Örn Atlason,
England: Þrjú rauð í jafntefli Sunderland og Portsmouth
Adebayor skoraði.
Mynd: NordicPhotos
Þremur leikjum af fjórum er lokið í ensku úrvalsdeildinni þetta kvöldið. Sunderland og botnlið Portsmouth skildu jöfn, 1-1.

Þar skoraði Darrent Bent eina mark Sunderland úr vítaspyrnu eftir að Ricardo Rocha hafði brotið á honum inni í vítateig. Fyrir vikið fékk Rocha rautt spjald en Lee Cattermole og David Meyler, leikmenn Sunderland fengu báðir að sjá rauða spjaldið í síðari hálfleiknum. Cattermole fékk tvö gul spjöld, en Meyler fékk rautt fyrir að gefa Steve Finnan olnbogaskot aðeins tveimur mínútum eftir að hafa komið inná sem varamaður. Portsmouth nýtti sér liðsmuninn og skoraði Aruna Dindane mark í uppbótartíma.

Wigan Ahletic og Stoke City skildu jöfn á DW leikvanginum í kvöld. Sérvitringurinn Paul Scharner kom Wigan yfir í fyrri hálfleik en Tuncay Sanli jafnaði metin fyrir gestina þegar að rúmur stundarfjórðungur lifði leiks.

Þá vann Manchester City góðan 2-0 sigur á Bolton Wanderers. Grétar Rafn Steinsson spilaði allan leikinn fyrir Bolton.

Einum leik er ólokið í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en það er viðureign Fulham og Burnley. Þegar að þetta er skrifað er staðan 3-0 fyrir Fulham.


Portsmouth 1 - 1 Sunderland
0-1 D. Bent ('12, víti)
1-1 A. Dindane ('90)
Rauð spjöld: Ricardo Rocha ('12), Lee Cattermole ('54), David Meyler ('86).

Wigan Athletic 1 - 1 Stoke City
1-0 P. Scharner ('14)
1-1 Tuncay ('74)

Manchester City 2 - 0 Bolton Wanderers
1-0 C. Tévez ('31, víti)
2-0 E. Adebayor ('73)
Nýjustu fréttirnar