Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. febrúar 2010 12:00
Magnús Már Einarsson
Atvinnumaðurinn Emil Hall. - Fæ að vera í friði með skottið mitt
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Í dag hefur göngu sína á Fótbolti.net nýr liður sem nefnist "Atvinnumaðurinn." Þar er tekið viðtal við íslenskan fótboltamann sem er í atvinnumennskunni.

Emil Hallfreðsson, leikmaður Barnsley á Englandi, ríður á vaðið og hér að neðan má sjá afraksturinn.


Hvernig er aðstaðan hjá félaginu? Aðstaðan hjá félaginu er bara nokkuð góð. Æfingasvæðið er við hliðina á leikvanginum sem er mjög þægilegt, fínt að hafa allt á einum stað. Við erum með nokkra mjög góða grasvelli þar sem boltinn rúllar nokkuð vel. Eftir æfingar er boðið upp á heitan mat í mötuneytinu og þar er maturinn er alveg different class, NAT.

Finnur þú fyrir miklum áhuga hjá stuðningsmönnum liðsins? Já það er mikill áhugi fyrir liðinu í Barnsley og það er oftast mjög góð stemmning á Oakwell stadium.

Fyrir utan það finn ég nú ekki mikið fyrir stuðningsmönnunum og fæ að vera í friði með skottið mitt.

Hvernig er venjulegur æfingadagur hjá þér? Hann hljómar einhvernveginn svona: Ég vakna klukkan níu og fer beint að pissa. Fæ mér að borða og þá oftast special K með rúsínum og mjólk og spírulínu. Fer útúr húsi korter korter í tíu þar sem ég þarf að vera mættur korter yfir tíu inní búningsklefa. Æfingin sjálf byrjar svo klukkan ellefu. Ég tek alltaf á því eins og ég sé að mæta á mínu síðustu æfingu ever og læt svo dekra hressilega við mig í nuddi, fótsnyrtingum og fleira. Hoppa í kalt og heitt bað, skelli mér svo í sturtu og fæ mér síðan stundum að borða í mötuneytinu (svona 2 daga af 7 ) og ef ekki þá þá hefur mín yndislega kærasta tilbúinn hádegismat handa mér þegar ég kem heim. Það sem eftir lifir dags gerum við bara nokkurn veginn það sem okkur langar til.

Hvernig er venjulegur leikdagur hjá þér? Ef það er heimaleikur þá vakna ég klukkan níu og fæ mér áðurnefndan morgunmat. Ég legg mig svo aftur og sef til svona 11:30 og þá fæ ég mér aftur að borða. Ég hef að undanförnu fengið mér ristað brauð með bökuðum baunum, appelsínudjús og banana. Svo er ég bara a mættur uppá völl einum og hálfum tíma fyrir leik. Þá tekur við me-time með iPodnum mínum þangað til upphitunin tekur við. Tefli við páfann og loks andstæðinginn. Hviss bamm búmm og mark.

Hvernig býrðu þarna úti? Ég bý ásamt Ásu Maríu unnustu minni í miðborg Leeds. Íbúðin er vel staðsett, höfum allt það nauðsynlegasta í göngufæri nema Barnsley sem er í ca hálftíma fjarlægð frá Leeds. Íbúðin okkar er þægileg og rúmgóð og það fer vel um alla sem hér eru, líka gestina sem hafa verið duglegir að koma til okkar í heimsókn.

Þegar þú kemur heim til Íslands í frí, hvað er það fyrsta sem þú gerir? (Ferðu á einhvern ákveðinn stað, færðu þér eitthvað ákveðið að borða t.d?) Ég byrja alltaf á því að fara heim til mömmu og pabba og fá mér Kornflakes með íslenskri mjólk.

Ég og Ása eigum nokkra uppáhaldsstaði á Íslandi sem við förum alltaf á og er hádegisverðahlaðborðið á Vox meðal þeirra. Við förum líka í kvöldsund, chillum í gufuböðunum og fáum okkur ís. Það skiptir mig líka miklu máli að fara í kirkjuna mína, Fíladelfía, og rækta samband mitt við guð almáttugan. Fyrir mér er það jafn nauðsynlegt og rækta líkamann með hollum mat. Fyrir utan þetta allt saman reyni ég að nýta tímann sem best með mínum nánustu þegar ég er heima á Íslandi, það er molto importante.

Komdu með eina skemmtilega staðreynd um félagið sem fólk veit ekki um: Hjá félaginu vinnur maður að nafni Rino. Hann er 83 ára gamall og hefur unnið við flest allt sem hægt er að gera hjá félaginu; Manager, þjálfari, aðstoðarþjálfari, tæknilegur ráðgjafi, scout (njósnari), fitnesþjálfari, mötuneytisstjóri og er nú kit manager (búningamaður).

Hvað værir þú að gera ef þú værir ekki atvinnumaður í fótbolta? Ég væri mjög líklega a rockstar.

Áttu einhverja skemmtilega sögu frá ferlinum? Ferillinn í heild sinni er bráðskemmtileg saga sem verður gefin út í flokki spennusagna.

Eftir fimm ár þá verður þú.... Á hátindi ferilsins, leikmaður AC Milan, hamingjusamlega giftur með 5 börn.
Slapp
banner
banner