Í síðustu viku hóf göngu sína á Fótbolti.net nýr liður sem nefnist ,,Atvinnumaðurinn." Þar er tekið viðtal við íslenskan fótboltamann sem er í atvinnumennskunni.
Í dag er komið að því að kynnast lífinu hjá Guðbjörgu Gunnarsdóttur landsliðsmarkverði Íslands sem leikur með Djurgården í Svíþjóð.
Í dag er komið að því að kynnast lífinu hjá Guðbjörgu Gunnarsdóttur landsliðsmarkverði Íslands sem leikur með Djurgården í Svíþjóð.
Hvernig er aðstaðan hjá félaginu?
Aðstaðan er mjög góð á sumrin! Núna erum við að lenda í því að það hefur dunið yfir versti vetur í Stokkhólmi í einhver 100 ár þannig að gervigrasvöllurinn okkar sem við notum á undirbúningstímabilinu er undir metraháum snjó og er ónothæfur.
Meðalhitastig í janúar líklega um -10! Sem þýðir að núna æfum við útum alla borg og ég gef því ekki háa einkunn! En undir eðlilegum kringumstæðum erum við með mjög góðan grasvöll, lítinn gervigrasvöll nánast við hliðina á grasinu og stóran gervigrasvöll rétt hjá og höfum allt til alls. Það er yfirleitt mjög vel hugsað um grasið þannig völlurinn er í toppstandi! (á sumrin)
Finnur þú fyrir miklum áhuga hjá stuðningsmönnum liðsins?
Það fór mjög minnkandi á síðasta tímabili en það er ákveðin kjarni sem mætir alltaf og stendur fyrir sínu.
Hvernig er venjulegur æfingadagur hjá þér?
Núna er pre-season og stífari æfingar en væru á miðju tímabili. Þá vakna ég 6.45 (Svíar eru morgunóðir) og er sótt 7.15 og mætt á æfingu með strákunum 8.30 – 10.00.
Strákarnir æfa inní Bosön sem er eina fótboltahöllinn í fullri stærð Stokkhólmi! Fæ mér síðan að borða og legg mig yfirleitt í cirka 90 mínútur þar sem ég er ekki morgunglaðasta manneskjan!
Fæ mér síðan yfirleitt góðan lunch og slaka á fyrir æfinguna sem er seinni partinn. Kvöldin fara yfirleitt í eldamennsku og sjónvarpsgláp eða góðan veitingastað, ég og Gunna (Guðrún Sóley Gunnarsdóttir) erum orðnar fastagestir á ítalska veitingastaðnum Vapiano í Gamla Stan.
Hvernig er venjulegur leikdagur hjá þér?
Ef það er heimaleikur þá byrja ég að sofa út og fæ mér morgunmat um 10.30. Svo borða ég yfirleitt mitt fræga leikpasta um tvöleytið sem inniheldur meðal annars íslenskan piparost sem ég fæ reglulega sendan frá góðum fjölskildumeðlimum heima á Íslandi.
Svo hlusta ég á ákveðna tónlist sem kemur mér í stuð og fæ mér ristað brauð með banana og epladjús rétt áður en ég mæti. Svo rölti ég yfir á völl sem er í tveggja mínútna göngufjarlægð hér við hliðina á og rústa þessum Svíum!
Ef það er útileikur fylgir maður bara liðinu. Fáum yfirleitt lax í hádeginu sem ég þoli ekki og er enn að vinna í því að fá pasta, fæ reglulega sænskar kjötbollur í staðinn fyrir laxinn! Það er mismunandi hvernig útileikirnir eru hvort þeir eru það langt í burtu að við fljúgum og gistum eða tökum bara rútu í nokkra tíma.
Hvernig býrðu þarna úti?
Ég bý í fínni íbúð og sé nánast völlinn héðan. Er rúmar tvær mínútur að labba niður á völl þannig þetta er frábær staðsetning. Ég er einnig nánast í miðborginni þannig þetta er svona næstum 101 Stokkhólms!
Ég bý eins og er ein og með nóg pláss og gestaherbergi fyrir Íslendingana heima sem koma í heimsókn. Er búin að splæsa í rock band, hljómborð og fleiri græjur til að láta mér ekki leiðast á milli æfinga en fyrir utan það er þetta ansi stelpuleg og kósý íbúð :)
Þegar þú kemur heim til Íslands í frí, hvað er það fyrsta sem þú gerir?
Ég fer nánast alltaf beint í Vesturbæjarís, ég gjörsamlega elska þennan ís. Svo er eldsmiðjan oft fyrir valinu þar sem ég fæ mér eina sprengju með íslensku pepperoni, sveppum og rjómaosti! Svo er nauðsynlegt að kíkja í sundlaugar landsins og fara í heita pottinn. Svíar vita ekki hvað heitur pottur er eða hvernig hann virkar, þetta er ilvolgt og manni verður kalt eftir nokkrar mínútur. Tilgangslaust að reyna þetta hérna. Svo að sjálfsögðu fer ég og hitti fjölskylduna, vini og vandamenn :)
Komdu með eina skemmtilega staðreynd um félagið sem fólk veit ekki um:
Stelpurnar voru að segja mér inní klefa um daginn að tveir síðustu markmenn liðsins sem voru á undan mér, Bente Nordby og svo Nadine Angerer hafi báðar verið valdar bestu markmenn heims einhvern tíman þannig það er helvíti mikil pressa að geta eitthvað hérna!!
Hvað værir þú að gera ef þú værir ekki atvinnumaður í fótbolta?
Ég væri væntanlega að nördast eitthvað í kringum hagfræðina þar sem ég er hagfræðingur að mennt. Svo er ég reyndar farin að mála myndir líka, spurning hvort að ég hefði farið meira út í listamannatýpuna! Eða jafnvel stofnað hljómsveit og glamrað á píanóið allan daginn!
Áttu einhverja skemmtilega sögu frá ferlinum?
Ég á endalausar sögur, gleði og sorg, at the moment er mér minnistæðast þegar ég var að spila minn fyrsta landsleik, 15 ára að aldri að mig minnir fyrir U17. Ég átti að koma inná í hálfleik á móti Þýskalandi og ákvað einhverra hluta vegna að byrja að skokka á hlaupabrautinni hliðina á vellinum. Lagði splunkunýju markmannshanskana á grasið og þegar ég var orðin heit og átti að koma inná var búið að stela hönskunum!
Þegar maður var 15 ára hvarflaði ekki að manni að taka aukahanska í leik þannig ég stóð þarna hanskalaus og vissi ekkert hvað ég ætti að gera, endaði með að ég hljóp inní klefa þar sem hinn markmaðurinn var og fékk lánaða hennar hanska. Leiknum seinkaði smá vegna þessa og ég get sagt ykkur það að eftir þessa reynslu tek ég alltaf að minnsta kosti tvö pör í leik!
Eftir fimm ár þá verður þú....
...á hátindi markmannsferilsins að toppa í einhverju góðu liði :)
Sjá einnig:
Atvinnumaðurinn Emil Hall. - Fæ að vera í friði með skottið mitt.


