Ekkert verður af því að netsjónvarpsstöðin SportTV sýni frá Lengjubikar karla um helgina þar sem þýska fyrirtækið SportFive, sem á sýningarréttinn af mótinu, hefur ekki veitt svar um sýningarrétt ennþá.
SportTV, KSÍ og Sportfive reikna með að komast að samkomulagi snemma í næstu viku og því reiknar stöðin með að geta hafið sýningar frá Lengjubikarnum um aðra helgi í samræmi við auglýsta dagskrá.
Þetta þýðir þó ekki að fótboltaáhugamenn verði af því að sjá leiki á SportTV um helgina því í kvöld ætlar stöðin að sýna beint frá úrslitaleik Keflavíkur og Grindavíkur um sigur í Reykjaneshallarmótinu.
Sá leikur hefst klukkan 20:00 í Reykjaneshöllinni en eins og við sögðum frá fyrr í morgun mæta bæði lið til leiks með sín sterkustu lið og má búast við hörkuleik eins og venja er á milli þessara liða.




