Á dögunum hóf göngu sína á Fótbolti.net nýr liður sem nefnist ,,Atvinnumaðurinn." Þar er tekið viðtal við íslenskan fótboltamann sem er í atvinnumennskunni.
Í dag er komið að því að kynnast lífinu hjá framherjanum Gunnari Heiðari Þorvaldssyni.
Gunnar Heiðar gekk til liðs við Reading í byrjun árs en hann verður í eldlínunni þegar að liðið mætir WBA í enska bikarnum í kvöld.
Hvernig er aðstaðan hjá félaginu? Alveg til fyrirmyndar. Enda var þessi klúbbur í Premier League fyrir nokkrum árum síðan þannig að þú verður þá að hafa góða aðstöðu.
Finnur þú fyrir miklum áhuga hjá stuðningsmönnum liðsins? Já virkilega. Ég get nú ekki sagt að það séu brjáluð læti hjá okkur á heimaleikjum en það er alltaf einn kjarni sem lætur heyra í sér. Svo fáum við góðan stuðning á útivöllum. Þar koma ,,ekta" stuðningsmenn og hvetja okkur áfram.
Hvernig er venjulegur æfingadagur hjá þér? Hann er nú oftast þannig að ég vakna með syni mínum 7 - 7:30. Við förum niðrí eldhús og fáum okkur nær alltaf Cheerios (eins og er selt á Íslandi, ekki eitthvað sykurhúðað rusl sem er selt hérna úti) og ristabrauð með banana. Síðan fáum við okkur lýsi og vítamínin okkar og skolum þeim niður með glasi af ávaxtasafa. Síðan legg ég af stað frá húsinu mínu um 9:30 og það tekur mig 15 - 20 mínútur að keyra á æfingar. Síðan byrja æfingarnar kl. 10:30. Ég er oftast búinn á fótboltaæfingunni um tólf leytið og þá fer maður inní gymið og lyftir aðeins og teygir á. Eftir það er fengið sér mat í mötuneytinu sem er oftast ofeldaður og þurr kjúklingur þannig að maður fær nú ekki mikið úr því. Ef svo er þá fer ég bara heim og elda mér eitthvað sjálfur ef konan er ekki búin að því.
Hvernig er venjulegur leikdagur hjá þér? Á heimaleikjum fæ ég að sofa aðeins lengur, kannski til 9 og þá fæ ég mér morgunmat. Síðan fæ ég mér oftast pastamáltíð um hádegisbil þannig að maður verður klár í slaginn kl. 15 þegar leikurinn byrjar. Í útleikina förum við alltaf deginum áður og gistum á hóteli. En þar er nær sama rútína, morgunmatur um 9 og pasta/kjúklingur kl.12.
Hvernig býrðu þarna úti? Ég bý í svokölluðu Townhúsi. Nálægt miðbænum hérna, u.þ.b. 15 mínútur að labba í miðbæ Reading. Húsið er ágætlega stórt, veit ekkert hvað það er í fermetrum en hérna úti tala menn alltaf um herbergisfjöldann og hann er 4. Svo er alltaf byggt upp hérna úti þannig að húsið er á 4 hæðum þannig að maður er í 24/7 pallapúli hérna. Bý hérna ásamt konu minni og eins og hálfs árs gömlum syni.
Þegar þú kemur heim til Íslands í frí, hvað er það fyrsta sem þú gerir? (Ferðu á einhvern ákveðinn stað, færðu þér eitthvað ákveðið að borða t.d?) Það er alltaf gott að koma heim til mömmu og fá ,,mömmumat". Ég er kominn með algjört æði fyrir íslensku lambalæri. Ég held að fólk á Íslandi geri sér ekki grein fyrir því hvað það er virkilega gott miðað við aðrar kjötafurður útí heiminum. Annars er skylda að fá sér pUlsu með öllu og maltöl. Síðan klikkar American style aldrei.
Komdu með eina skemmtilega staðreynd um félagið sem fólk veit ekki um:
Ég fékk að vita það í dag að það var maður að nafni Adie Williams sem spilaði fyrir Reading FC hér á árum áður sem hefur spilað í öllum númerunum fyrir Reading FC. Í gamla daga þá voru númerin frá 1 og uppí 14 og systemið var alltaf; búningur nr.1 - markmaður, nr.2 - hægri bakvörður o.s.frv. Þannig að þessi kappi spilaði allar stöðurnar fyrir Reading hérna í gamla daga. Merkilegt:)
Hvað værir þú að gera ef þú værir ekki atvinnumaður í fótbolta? Ætli ég væri ekki sjómaður. Sjómennskan heillaði mig alltaf. En ef ég mætti velja þá væri það rokkstjarna. Ekki spurning. Virkilega flott atvinna.
Áttu einhverja skemmtilega sögu frá ferlinum? Úff...eiginlega alltof margar. Kem engri fyrir mig.
Eftir fimm ár þá verður þú.... Spilandi þjálfari hjá ÍBV! Ætli Tryggvi verði ekki ennþá að spila til að ná markametinu, þannig að við verðum saman frammi:)
Sjá einnig:
Atvinnumaðurinn Emil Hall. - Fæ að vera í friði með skottið mitt
Atvinnumaðurinn Guðbjörg - Búin að splæsa í Rock Band




