Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 24. febrúar 2010 23:15
Alexander Freyr Tamimi
Cech meiddist á kálfa gegn Inter - Líkast til ekki mjög alvarlegt
Carlo Ancelotti knattspyrnustjóri Chelsea hefur greint frá því að meiðsli markvarðarins Petr Cech í 2-1 tapinu gegn Inter í Meistaradeildinni í kvöld hafi verið á kálfa.

Cech meiddist skyndilega án snertingar eftir að hafa gripið knöttinn í seinni hálfeiknum og þurfti að skipta honum út af fyrir Portúgalann Hilario á 61. mínútu. Fyrst var talið að um alvarleg hnémeiðsli væri að ræða en sú staðreynd að svo er ekki eru jákvæðar fréttir.

Aðspurður útilokar Ancelotti ekki að Cech muni snúa fljótt aftur: ,,Við vitum það ekki núna. Við þurfum að bíða í nokkra daga," sagði Ítalinn.

,,Við þurfum að gera skoðun á kálfa hans. Við munum taka ákvörðun þá og vita hversu lengi hann verður frá."

Hann bætti því við að hann vissi ekki hvort að þessi landsliðsmarkvörður Tékklands yrði til í slaginn gegn Manchester City um helgina.
Slapp
banner