Á dögunum hóf göngu sína á Fótbolti.net nýr liður sem nefnist ,,Atvinnumaðurinn." Þar er tekið viðtal við íslenskan fótboltamann sem er í atvinnumennskunni.
Í dag er komið að því að kynnast lífinu hjá Rúrik Gíslasyni sem leikur með OB í Danmörku.
Rúrik verður í eldlínunni síðar í dag þegar að íslenska landsliðið mætir Kýpur.
Hvernig er aðstaðan hjá félaginu?
Aðstaðan er fín. Eigum mjög flottan heimavöll en æfingasvæðið er gamalt og mætti vera betra.
Finnur þú fyrir miklum áhuga hjá stuðningsmönnum liðsins?
Já, mjög miklum. Það hefur gengið vel síðan ég kom til klúbbsins og þá vilja allir vera með.
Hvernig er venjulegur æfingadagur hjá þér?
Ég vakna hálf níu og fæ mér morgunmat. Er mættur á æfingasvæðið klukkan korter yfir 9. Æfi klukkan tíu. Klukkan tólf er hádegismatur. Er kominn heim um eitt leytið. Tvisvar í viku æfum við tvisvar á dag. Þá er önnur æfing klukkan 2 og er þá kominn heim um fjögur leytið.
Hvernig er venjulegur leikdagur hjá þér?
Ef við eigum heimaleik vakna ég um 9 leytið og fæ mér morgunmat. Svo legg ég mig aðeins, fæ mér svo hádegismat áður en ég legg af stað á völlinn þar sem ég er mættur klukkan hálf tvö þegar við spilum klukkan 3.
Hvernig býrðu þarna úti? Ég bý í mínu húsi með minni kærustu og hundi. Ég bý í Óðinsvéum og það tekur mig ekki nema um 7 mínútur að keyra á æfingar.
Þegar þú kemur heim til Íslands í frí, hvað er það fyrsta sem þú gerir? (Ferðu á einhvern ákveðinn stað, færðu þér eitthvað ákveðið að borða t.d?) Ég fer heim til foreldra minna eða foreldra kærustunnar minnar og heilsa upp á ættingja. Þar bíður okkar yfirleitt lambalæri sem að ég kann vel að meta.
Komdu með eina skemmtilega staðreynd um félagið sem fólk veit ekki um:
Liðið hefur unnið flesta titla af öllum liðum í Danmörku sem að byrja á stafnum O.
Hvað værir þú að gera ef þú værir ekki atvinnumaður í fótbolta?
Ég væri ábyggilega í námi eins og flestir mínir vinir. Myndi væntanlega vera í bumbubolta nokkrum sinnum í viku til að svala fótboltafíkninni minni.
Áttu einhverja skemmtilega sögu frá ferlinum?
Þegar vel gengur er yfirleitt gaman að vera atvinnumaður. Ég man ekki eftir einni sérstakri sögu. Ef ævisagan mín yrði gefin út núna yrði hún enginn doðrantur.
Eftir fimm ár þá verður þú....
Vonandi ennþá í atvinnumennskunni. Fótboltinn er upp og niður þannig að það er eins gott að vera á tánum.
Sjá einnig:
Atvinnumaðurinn Emil Hall. - Fæ að vera í friði með skottið mitt
Atvinnumaðurinn Guðbjörg - Búin að splæsa í Rock Band
Atvinnumaðurinn Gunnar Heiðar: Sjómennskan heillaði alltaf



