Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 10. mars 2010 08:25
Magnús Már Einarsson
Hjörvar Hafliðason spáir í Meistaradeildina
Tveir leikir fara fram í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Manchester United mætir AC Milan en Englandsmeistararnir eru 3-2 yfir eftir fyrri leikinn. Real Madrid mætir síðan Lyon en síðarnefnda liðið sigraði fyrri leikinn í Frakklandi 1-0.

Guðmundur Benediktsson og Hjörvar Hafliðason eru sérfræðingar Fótbolta.net í Meistaradeildinni og hér að neðan má sjá spá Hjörvars fyrir leikina í kvöld.

Manchester United 1 - 1 AC Milan
Þarna mætir toppliðið í ensku úrvalsdeildinni liðinu í öðru sætinu á Ítalíu og þessi leikur fer 1-1. Þetta verður hörkuleikur þar sem að AC Milan sækir af miklum krafti fyrsta hálftímann en þvert gegn gangi leiksins skorar Antonio Valencia. Í upphafi seinni hálfleiks jafnar Klaas Jan Huntelaar síðan og þar við situr.

Real Madrid 3 - 1 Lyon
Ég ætla að segja að þetta fari 3-1 fyrir Real Madrid. Gonzalo Higuain verður með tvö mörk fyrir Real Madrid og Cristiano Ronaldo með eitt. Lisandro Lopez skorar síðan mark Lyon.
Slapp
banner