Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 10. mars 2010 07:30
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Benediktsson spáir í Meistaradeildina
Tveir leikir fara fram í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Manchester United mætir AC Milan en Englandsmeistararnir eru 3-2 yfir eftir fyrri leikinn. Real Madrid mætir síðan Lyon en síðarnefnda liðið sigraði fyrri leikinn í Frakklandi 1-0.

Guðmundur Benediktsson og Hjörvar Hafliðason eru sérfræðingar Fótbolta.net í Meistaradeildinni og hér að neðan má sjá spá Guðmundur fyrir leikina í kvöld.

Manchester United 2 - 1 AC Milan
Þetta verður svakalegur leikur á Old Trafford. United menn hafa verið að naga ekki bara neglur sínar heldur fingur á meðan þeir bíða eftir því að sjá hvort Wayne Rooney verði með. Ég ætla að tippa á þetta að fari 1-1 ef að Rooney er ekki með en 2-1 ef að hann verður með þannig að United heldur áfram í keppninni.

Real Madrid 4 - 0 Lyon
Ég hef ekki trú á að Frakkarnir eigi séns. Real lenti 2-0 undir á heimavelli um helgina og snéru taflinu við. Þeir hafa unnið þrettán leiki í röð í deildinni og þeir halda áfram í sama gír, þeir vinna þennan heimaleik gegn Lyon. Þeir eru ennþá í smá sárum eftir tapið í Lyon og ég hugsa að franska liðið verði eins og smákrakkar í höndunum á þeim í þessum leik og sjá aldrei til sólar.

Ég ætla að spá því að það verði veisla á Bernabeu vellinum og ég ætla að gerast svo djarfur að spá 4-0 sigri Real Madrid. Ronaldo skorar tvö mörk, Kaka eitt og Raul klárar þetta. Gonzalo Higuain meiðist í fyrri hálfleik, þó ekki alvarlega, og hann fer af velli í leikhléi fyrir Raul.
Slapp
banner
banner