Ljóst er að Marel Baldvinsson mun ekki leika með Val í sumar en þetta staðfesti Gunnlaugur Jónsson þjálfari liðsins við Fótbolta.net í dag.
Marel ákvað síðastliðið haust að leggja skóna á hilluna en hann hefur mætt á æfingar hjá Val í vetur og félagið hafði vonast til að ná samningum við hann.
,,Eins og við höfðum gefið út þá var það fyrsti kostur að hafa Marel en því miður þá var hann ekki til í það þannig að leit okkar heldur áfram," sagði Gunnlaugur sem býst við að Valsmenn muni núna leita erlendis að framherja.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er möguleiki á að Marel muni ganga til liðs við Stjörnuna en hann hefur átt í viðræðum við félagið undanfarið.
Marel var sterklega orðaður við Stjörnuna áður en hann ákvað að hætta síðastliðið haust. Marel þjálfar annan flokk Stjörnunnar/Álftanes og gerði það einnig í fyrra.
Marel kom til Vals frá Breiðablik fyrir tæpu ári síðan en hann skoraði þrjú mörk í nítján leikjum í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.

