Breiðablik 3-2 HK
0-1 Jónas Grani Garðarsson ('12)
1-1 Alfreð Finnbogason ('18)
1-2 Þórður Birgisson ('52)
2-2 Arnór Sveinn Aðalsteinsson ('80)
3-2 Rafn Andri Haraldsson ('88)
Breiðablik lenti tvisvar undir en náði samt að vinna nágranna sína og erkiféndur í HK í nágrannaslag í Lengjubikar karla í kvöld en leikið var í Kórnum í Kópavogi.
0-1 Jónas Grani Garðarsson ('12)
1-1 Alfreð Finnbogason ('18)
1-2 Þórður Birgisson ('52)
2-2 Arnór Sveinn Aðalsteinsson ('80)
3-2 Rafn Andri Haraldsson ('88)
Breiðablik lenti tvisvar undir en náði samt að vinna nágranna sína og erkiféndur í HK í nágrannaslag í Lengjubikar karla í kvöld en leikið var í Kórnum í Kópavogi.
HK komst yfir á 12. mínútu leiksins. Ögmundur Ólafsson markvörður sendi þá langan bolta frá marki sínu inn í vítateiginn hinum megin þar sem varnarmenn Blika voru hálfsofandi og Þórður Birgisson tók boltann og sendi áfram á Jónas Grana Garðarsson sem skoraði.
Sex mínútum síðar jöfnuðu Blikar metin. Þeir fengu þá aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig eftir að Ragnar Már Sigrúnarson brautá Alfreð Finnbogasyni rétt fyrir utan vítateig. Alfreð tók spyrnuna sjálfur og boltinn fór í varnarvegg HK og þaðan í netið. Staðan orðin 1-1 og þannig var hún í hálfleik.
Breiðabliksliðið hefur oft leikið betur en í kvöld og komu ekki nógu sterkir út í síðari hálfleikinn þar sem HK var á löngum köflum betra. Engu munaði að Alfreð Finnbogason skoraði er hann lék á Ögmund og setti boltann á markið en Ragnar Már var snöggur til og náði boltanum áður en hann fór yfir marklínuna. Þórður Birgisson bætti við öðru marki fyrir HK þegar sjö mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum.
Jónas Grani sendi þá góða sendingu innfyrir vörn Blika vinstra megin þar sem Hörður Magnússon stakk sér á milli varnarmanna og komst í gott skotfæri en var óeigingjarn og sendi til hægri á Þórð Birgisson sem setti boltann í tómt mark.
Þó svo að sóknartilburðir Breiðabliks hafi oft virst máttlausir og leikmenn áttu að geta gert betur er karakter í liðinu og hjá þeim kom ekki til greina að tapa í grannaslagnum. Arnór Sveinn Aðalsteinsson jafnaði metin þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum með góðu skoti fyrir utan vítateig sem fór á fjær og framhjá Ögmundi í markinu.
Rafn Andri Haraldsson tryggði Breiðablik svo sigurinn með góðu skoti úr teignum þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum við mikinn fögnuð fjölda áhorfenda sem lögðu leið sína í Kórinn í kvöld.
Breiðablik: Ingvar Kale, Árni Kristinn Gunnarsson (Tómas Óli Garðarsson '88), Arnar Grétarsson (Olgeir Sigurgeirsson '44), Kári Ársælsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Finnur Orri Margeirsson, Jökull Elísabetarson, Guðmundur Kristjánsson, Rafn Andri Haraldsson, Alfreð Finnbogason (Haukur Baldvinsson '66), Kristinn Steindórsson (Rannver Sigurjónsson '83).
HK: Ögmundur Ólafsson, Damir Muminovic (Davíð Magnússon '66), Ásgrímur Albertsson, Ragnar Már Sigrúnarson, Hörður Árnason, Aaron Palomares (Hólmbert Friðjónsson '62), Brynjar Víðisson, Atli Valsson, Hörður Magnússon, Þórður Birgisson, Jónas Grani Garðarsson (Samúel Arnar Kjartansson '80)
Gul spjöld: Ragnar Már Sigrúnarson, HK ('17), Atli Valsson, HK ('38), Guðmundur Kristjánsson, Breiðablik ('63), Arnar Grétarsson, Breiðabik ('74), Kári Ársælsson, Breiðablik ('84)



