Einn leikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en Burnley tekur á móti Stoke klukkan 19:45.
Burnley þarf nauðsynlega á sigri að halda en liðið er í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Jóhannes Karl Guðjónsson hefur ekki verið í leikmannahópi Burnley að undanförnu en hann hefur ekki verið í náðinni hjá Brian Laws knattspyrustjóra liðsins.
Laws tók við af Owen Coyle í janúar en Burnley hefur einungis unnið einn leik síðan að hann tók við stjórnartaumunum.
Leikur dagsins:
19:45 Burnley - Stoke



