Fiorentina 3 - 2 FC Bayern:
1-0 Juan Vargas (28.)
2-0 Stevan Jovetic (54.)
2-1 Mark van Bommel (60.)
3-1 Stevan Jovetic (64.)
3-2 Arjen Robben (65.)
1-0 Juan Vargas (28.)
2-0 Stevan Jovetic (54.)
2-1 Mark van Bommel (60.)
3-1 Stevan Jovetic (64.)
3-2 Arjen Robben (65.)
Bayern Munchen er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar á fleiri mörkum skoruð á útivelli en liðið tapaði 3-2 fyrir Fiorentina í kvöld.
Juan Vargars kom heimamönnum yfir eftir tæpan hálftíma þegar Hans Jorg Butt hélt ekki skoti hans.
Stevan Jovetic kom svo heimamönnum í 2-0 þegar níu mínútur voru búnar af síðari hálfleik.
En Adam var ekki lengi í paradís því Mark Van Bommel minnkaði muninn eftir klukkutíma leik.
Jovetic sem hefur verið orðaður við mörg stórlið undanfarið skoraði svo annað mark fjórum mínútum eftir mark Bommel.
En líkt og fyrr í leiknum hélt Fiorentina ekki lengi út og Arjen Robben skoraði markið mikilvæga sem kom Bayern áfram en það gerði hann með fallegu langskoti.
Eflaust verður mikið talað um markið sem Bayern skoraði í 2-1 sigri liðsins á heimavelli þar sem Miroslav Klose skoraði mark en hann var rangstæður.



