Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 10. mars 2010 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Fletcher: Sést að Rooney æfir sig mikið
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Darren Fletcher leikmaður Manchester United segir að það sjáist vel að Wayne Rooney samherji hans eyði miklum á æfingasvæðinu.

Þessi frábæri framherji hefur verið óstöðvandi á þessari leiktíð en hann hefur skorað 27 mörk í öllum keppnum.

Með brottför Cristiano Ronaldo í sumar héldu margir að mörkin myndi vanta en Rooney hefur stigið upp og skorað sem aldrei fyrr.

,,Fólk sér alla þá vinnu sem hann setur í æfingarnar á æfingasvæðinu," sagði Fletcher.

,,Það hefur verið eftirteknavert hvað hann hefur skorað mörg mörk með skalla en það kemur með æfingu. Hann hefur tekist á við áskorunina um að vera markaskorari og frammistaða hans er alltaf á uppleið."

,,Wayne er þroskaðari og betri leikmaður, hann hefur styrkst á tímabilinu og sjálfstraust hans er í botni."

,,Hann trúir því að hann sé meðal bestu leikmanna í heimi og formið á honum sýnir það."

Slapp
banner