Heimild: Sky
Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United segir að leikmenn hans vel meðvitaða um hættuna sem stafar af David Beckham leikmanni AC Milan.
Beckham snýr aftur á Old Trafford í kvöld í fyrsta sinn síðan hann fór frá Manchester United. Beckham mun í kvöld leika með AC Milan gegn United í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en United vann fyrri leikinn 3-2 og er því í góðri stöðu.
,,Styrkleiki David hefur alltaf verið fyrirgjafir og ef hann spilar á morgun mun hann ógna okkur með föstum leikatriðum," sagði Ferguson.
,,Ég veit satt besta segja ekki hvort hann byrjar, ég er ekki viss hvernig Milan liðið verður."
,,Hann hefur ekki byrjað síðan í fyrri leiknum svo það er erfitt að segja hvaða áhrif hann mun hafa á leikinn."
,,Hann verður þarna og ef hann spilar þurfum við að passa sendingarnar hans sem eru frábærar."
,,Það er það sem hann er hættulegur í, það er margt sem þarf að varast í leik þeirra en við vitum allt um það sem David getur."


