Heimild: Sky
Steve Bruce stjóri Sunderland segir að Darren Bent leikmaður liðsins eigi að fara með enska landsliðinu á HM í sumar.
Bent hefur skorað 18 mörk í deildinni á þessari leiktíð og skoraði þrennu í gær í 4-0 sigri á Bolton.
,,Þetta er frábær endurkoma og hann hlýtur að vera að banka á dyrnar," sagði Bruce en þetta var fyrsti sigur Sunderland í 14 leikjum í röð.
,,Þegar þú skoðar stöðuna, 18 mörk og við erum í neðri hlutanum, það er magnað afrek."
,,Ég er viss um að hann getur bætt meira við áður en yfir lýkur og það mun gefa honum möguleika á að fara á HM."
,,Markaskorari er markaskorari og það eru ekki margir enskir í deildinni."
,,Það er Defoe og að sjálfsögðu Rooney en á eftir þeim hugsarðu, hver er fæddur markaskorari."
,,Hann skorarar alltaf í deildinni og fyrir mér á hann skilið að fá sénsinn."


