Heimild: Sky
Nicklas Bendtner, framherji Arsenal, var ánægður eftir að hann náði að skora þrennu í 5-0 sigri liðsins á Porto í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.
Bendtner náði með þessu að svara gagnrýnisröddum sem heyrðust eftir leikinn gegn Burnley um helgina en þar klúðraði Daninn nokkrum góðum færum.
,,Ég er ánægður með þrennuna mína en við höldum áfram," sagði Bendtner eftir leikinn.
,,Í hvert skipti sem að ég spila leik þá gleymi ég honum um leið og hann klárast."
,,Það var gott að ég náði að skora snemma en ég veit ekki hvort að það hafði áhrif á leik minn."




